Alveg að koma jól

Þá styttist verulega í jólin og er maður nú aðeins að byrja að komast í jólaskapið.  Við erum mjög langt komin með gjafirnar og þá er bara að drífa sig í að pakka og senda, svona þar sem nánast allir pakkar sem við gefum fara suður, en við ætlum að sjálfsögðu ekki að fara fet um jólin, vorum að spá í að skella okkur suður, en hvar vill maður helst vera akkúrat á þessum tíma...auðvitað heima hjá sér að hafa það kósý, vildi helst hvergi annarstaðar vera, þó það væri auðvitað æðislegt að vera hjá mömmu og co, flatmaga þar í vellystingum og kruðeríi Smile en við nennum ekki að brasa við þetta, enda vinna hjá kellunni milli jóla og nýjárs.  Auðvitað er nú líka að verða tímabært að gamla settið kannski verði hjá okkur yfir hátíðarnar svona einu sinni Whistling En auðvitað hefur fólk þetta bara eins og það vill.  Við erum að spá í að gefa Birki eitt stykki fjarstýrðan spiderman, allavega þá er það það eina sem hann vill í jólagjöf, er ég nú búin að spyrja hann ófáusinnum og alltaf segir grísinn að hann vilji fjarstýrðan spiderman, málið er bara það að ég veit ekkert hvar slíkt færst eða bara hreinlega hvort það fáist yfir höfuð, maður þarf kannski bara að hringja í þessar stærstu leikfangabúðir landsins og ath hvort slík mubla sé til, en ef einhver hefur hugmynd um þetta þá bara endilega láta mig vita, væri vel þegið að fá smá hjálp.  Anna Karen er hins afskaplega góð móðir og vill ekkert annað en rúm eða skiptiborð svo að hann Rómeó Júlíus hennar þurfi nú ekki að sofa í vagninum sínum eitthvað mikið lengur,  tja og svo þykir dömunni nú ekki mikið varið í það að skipta alltaf á honum bara á gólfinu eða brasast við það í einhverjum annarlegum stellingum í sófanum, þannig að skiptiborð eða rúm skal það vera handa henni í ár.

Jæja ekki meira í bili

góðar stundirSmile


Snjókorn falla á allt og alla

  Kirkjutroppur    Hlidarfjall_mars06_Pedromyn 

Já eins og sést þá er komin ansi mikill snjór hér á Akureyri , svona kannski aðeins of mikið fyrir minn smekk, en það eru ekki allir á sama máli og ég því krílin mín algjörlega elska að vera úti í þessari veðráttu Smile

                             

 

                            

 


Naglana undir TAKK

Þá er komið að því sem sennilega margir hafa beðið eftir...tatarattataaaa komin vetur!! Það er nú svosem ekkert svo ferlegt að sú tíð sé genginn í garð, allavega þá hef ég ákveðið að láta þetta ekkert pirra mig, ég er búin að vera að láta svo margt og mikið pirra mig að undanförnu að ég bara ætla að snúa við blaðinu og brosa framan í lífiðGrin er greinilega komin yfir skammdegisþunglyndið þetta árið.  Nagladekkin hafa verið dregin fram en þó ekki komin undir að svo stöddu, en það líður sennilega ekki á löngu þar til það mun gerast, sýnist og finnst á öllu að það borgi sig nú, þar sem þetta er ekki í fyrsta skipti sem HR Háll lætur á sér kræla þetta haustið og ef maður rennir yfir vikuspánna á veður.is það eru allavega engin hlýindi framundan í kortunum.  Svo er stefnan tekin á suðurlandið helgina 7-9 nóvember, þar sem á að skíra litla kútinn hennar Töru, OHHH hvað ég hlakka til að sjá hann, get varla beðiðW00t og vona ég að þau hjónaleysin nái að vera sammála um nafn á drenginn fyrir þann tíma!!!  

En jæja best að fara að halda áfram að vinna, á eftir að gera nokkra svera reikninga á einhverja gamla sem og sjóhunda og útgerðarfélög, það eru nú ekki allar konur sem eru með brúttótonnin á skipum og bátum landsins á hreinu, það er ég sko alveg viss umCool

 Góða helgi 


Enn ein helgin að ganga í garð

Og jamm og já, þá er að koma helgi enn eina ferðina, ekki það að það sé ekki alltaf gott að fá helgi jú jú mikil ósköp, heldur er það veðrið sem pirrar mig mest þessa dagana, ég bara skil ekki af hverju ég er ekki flutt af landi brott eitthvert þar sem...

Það er allt að fara langleiðina til helvítis í þjóðfélaginu!!!

USD 101,77 102,21 GBP 184,13 184,91 DKK 19,51 19,61 NOK 17,46 17,56 SEK 14,87 14,93 CHF 92,31 92,77 JPY 0,97 0,97 CAD 97,27 97,69 EUR 145,53 146,29 XDR 158,45 159,12 Ég bara spyr hvað er að gerast í þessu auma samfélagi sem við búum í?!! Allavega þá get...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Bogga

Bogga
Útivinnandi eiginkona og móðir, jafnframt áhugamanneskja um hin ýmsu heimsmál.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 147

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband