Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Nú! ertu sekur um eitthvað?

rt_Josef_Fritzl_080430_mn

Þessi maður er eitt það mesta viðundur sem um getur!

Rudolf Mayer, verjandi Fritzl, sagði hins vegar að umbjóðandi sinn væri maður en ekki skrímsli og bað kviðdómendur um að gæta hlutleysis, er bara ekki allt í lagi heima hjá gaurnum? ef þessi Josef Fritzl er ekki skrímsli þá skal ég hundur heita, það er ekkert annað en hneyksli að setja svona vitleysu út úr sér í návist annarra og ætlast til þessa að fá góðan hljómgrunn, maðurinn hlýtur að hafa verið með óráði ég segi ekki annað.


mbl.is Fritzl játar sekt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ekki gott mál!

Því miður þá hefur mikið atvinnuleysi herjað á Íslensku þjóðina síðustu mánuði og virðist lítið lát á, því miður!  En eins og glöggt má sjá eru ívið fleiri karlar en konur atvinnulausir og má það líklegast benda til þess að það eru ansi margir iðnaðarmenn búnir að missa vinnuna sína, já og auðvitað fólk úr viðskiptalífinu, eins og t.d bankastarfsmenn bæði undir og yfirmenn. 

Vonandi fer þetta nú allt að glæðast með hækkandi sól, ég er allavega mjög fegin því að vera í öruggri og góðri vinnu sjálf og er minn maður líka ennþá í 100% vinnu þrátt fyrir að vera iðnaðarmaður, en maður veit svosem ekki hvað það endist þar sem hann er málari sem vinnur hjá afar völtu fyrirtæki að mínu mati, en vonandi að allt þetta fari bara á besta veg.  Ég vill nú meina þrátt fyrir allt, að þessi harða kreppa sem herjar á gæti jafnvel opnað mörgum ný og spennandi tækifæri, og klárlega komin tími á það að fólk hætti þessari neyslugreddu sem það hefur verið sýkt af síðustu ár sökum góðæris. 


mbl.is Ríflega 17 þúsund á atvinnuleysisskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var lagið

þetta eru alveg ásættanleg útkoma, ég hefði reyndar viljað sjá Höskuld í fyrsta sætinu en magnað samt, ég hef tröllatrú á Birki!! "skál" Smile
mbl.is Birkir Jón sigurvegari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningahelgi

Jæja þá er helgin að verða búin, og ég fór hvorki á mývatn eða á gönguskíði! en koma tímar koma ráð.  það sem markar þessa helgi þó mest eru kosningarnar sem hafa staðið um helgina, í fyrsta lagi er nottla bara frábært að hann Jón Baldvin komst ekki einu sinni á blað hjá samfylkingunni, að maðurinn hafi verið að gæla við það að ná formannssætinu, jamm og já til hamingju samfylking með ykkar annars ágætu stuðningsmenn sem virðast vera vel hugsandi.  En nú sit ég og bið spennt eftir niðurstöðu framsóknarflokksinns fyrir norðausturkjördæmi, held það eigi að detta inn 17.15, já nei það er nú sennilega búið að fresta því eitthvað, gat nú verið!!!

B


Laugardagur

Já þá er enn ein laugadagurinn gengin í garð og ég komin á fætur kl 7.45 sú fyrsta og eina á heimilinu sem komin er til meðvitunar.  Í dag ætla ég að byrja á því að skella mér í ræktina, síðan eru það fimleikar hjá frumburðinum, eftir það matur hjá teindó, að því loknu væri ég svo alveg rosalega mikið til í að skreppa uppí Hlíðarfjall og taka allavega einn hring á gönguskíðum "spurning samt um færð þar núna" , einnig væri gaman að bruna með fjölskylduna á rúntinn til Mývatnssveitar þar sem þar fer fram snjósleðamót um helgina, en ég var svo eiginlega búin að lofa dótturinni að fara í bíó í dag, á einhverja músamynd sem er eflaust voða skemmtileg, þannig að það er í nægu að snúast á þessu heimili þessa helgina.

En jæja ætla að fara að ýta mjúklega við mínum sofandi englum, alveg komin tími á fótferð, svona ef það á að sofna á skikkanlegum tíma í kvöld Smile

með von um góða helgi hjá öllum sem ég þekki og þekki ekki Cool

P.S allls ekki gleyma að kjósa!!!!

 


Bogga

Bogga
Útivinnandi eiginkona og móðir, jafnframt áhugamanneskja um hin ýmsu heimsmál.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband