19.12.2008 | 15:44
Síðasta bloggið fyrir jól
Senn koma jól, er gleðjast allir saman og þá er rosa gaman
Jú jú jólin eru víst á næsta leiti, og allir að hamast við að græja og gera hjá sér, en ég er svo afar heppin að ég er bara löööngu búin að öllu fyrir þessi jólin, og er þess vegna tími í það að dúllast við þrifin og dandalast með fjölskyldunni í jólaösinni.
Í dag verður jólateiti í vinnunni hjá mér á milli fjögur og sex, og erum það við starfsmenn hafnarinnar og hafnarstjórnin sem fáum að njóta nærveru hvers annars með bjór í annarri og tapas í hinni
Svo er það bara Greifinn kl átta með mínum heitt elskaða og hans staffi, mikið rosalega verður það notalegt, og bíð ég spennt.
En jæja, ætla að fara að skella í mig einum jólabjór og skemmta liðinu.
Gleðileg jól
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 22.12.2008 kl. 08:16 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.