30.9.2008 | 12:49
Það er allt að fara langleiðina til helvítis í þjóðfélaginu!!!
USD | 101,77 | 102,21 | |
GBP | 184,13 | 184,91 | |
DKK | 19,51 | 19,61 | |
NOK | 17,46 | 17,56 | |
SEK | 14,87 | 14,93 | |
CHF | 92,31 | 92,77 | |
JPY | 0,97 | 0,97 | |
CAD | 97,27 | 97,69 | |
EUR | 145,53 | 146,29 | |
XDR | 158,45 | 159,12 |
Ég bara spyr hvað er að gerast í þessu auma samfélagi sem við búum í?!! Allavega þá get ég nú ekki sagt það að það sé voða hagstætt að hafa lán í erlendri mynt í dag, tja eða bara lán yfir höfuð eins og t.d bílalán, og íbúðalán sennilega margir sem sitja í djúpum út af því sem er að gerast í fjármálaheiminum um þessar mundir, svo ég tali nú ekki um alla þá sem tóku sér erlent lán til húsakaupa og eða bygginga...æi greyið þeir" ég segi ekki annað, í dag þá er ég alveg svakalega fegin því að hafa ekki dottið í þá djúpu laug að kaupa mér íbúð á 100% láni eins og var í boði á tímabili, við hjónin erum reyndar guðs lifandi fegin því að vera bara á leigumarkaði í dag, hummm já og greyið allir þeir sem endurfjármögnuðu íbúðalánin sín sitja sennilega í súpunni í dag.
Það er nú sennilega alveg sama hvað maður tuðar og nöldrar yfir þessum málum það gerist ekkert!
Svona er bara því miður Ísland í dag!!!
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:26 | Facebook
Athugasemdir
Hva...........verður maður svona neikvæður á því að verða þrítugur!!!
En það er alveg rétt sko að það er allt til fjandans að fara á Íslandi í dag, shit maður.
Berglind Bergvins (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 13:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.