Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009
18.6.2009 | 09:07
Fjögur ár
Jamm og já í dag eru liðin fjögur ár síðan við hjónin gengum í það heilaga, þessi fjögur ár hafa verið mjög góð og það má með sanni segja að þessi gjörningur hafi breytt lífi okkar til hins betra en hann Birkir okkar á einnig fjögurra ára skírnarafmæli í dag, já þessi blessaði tími er sko fljótur að líða það er ekki hægt að segja annað.
Senn líður að sumarfríi og við fjölskyldan orðin ansi spennt að komast í langþráð frí, reyndar nottla eins og öll önnur sumur þá er Einir búin að kaffæra sig í mikilli vinnu, held að það hafi aldrei verið jafn bókað hjá honum eins og núna af stórum verkum, en planið var hins vegar að vera ekki að kaffæra sig í vinnu þetta sumarið og taka lífinu með ró, en á tímum sem þessum er víst ekki hægt að slá þessu upp í kæruleysi og líta framhjá þeirri vinnu sem býðst, við megum víst vel við una að hafa bæði vinnu og það nó af henni, allavega í augnablikinu, maður veit auðvitað aldrei hvað haustið ber í skauti sér, hvort iðnaðarmaðurinn hafi jafn mikið að gera eða hvað, en ef e-hver veit um góða vinnu fyrir duglegan mann þá endilega láta vita
Börnin okkar eru nú reyndar búin að taka forskot á sæluna og fóru suður til ömmu Sússu fyrr í þessum mánuði og voru hjá henni í 10 daga, lifðu það í vellystingum og dekrað var svoleiðis við þau úr öllum áttum, næstu helgi er stefnan svo tekin á suðurlandið þar sem við erum boðin í brúðkaup hjá Jónu frænku minni, það verður eflaust mikið fjör, og svo helgina eftir það þá er bara komið að sumarfríinu langþráða, þá verður stefnan aftur tekin á suðurlandið þar sem ég vonast til þess að við komumst í e-hverja smá útilegu.
Boot Campið gengur ljómandi vel og þykir mér nú reyndar verst að komast ekki í það í sumarfríinu, en ég er að hugsa um að taka nokkra tíma fyrir sunnan, allavega prufa það þar, en fyrsta námskeiðið er að klárast á morgunn og byrjar dagurinn á elite prófi sem lítur svona út
Grein | Tími | Viðmið karla | Viðmið kvenna |
Hlaup | 12:00 | 2,75 km | 2,5 km |
Armbeygjur | 2:00 | 80 stk | 40 stk |
Sit-ups | 2:00 | 80 stk | 80 stk |
Froskahopp | 2:00 | 40 stk | 40 stk |
Upphífingar | --:-- | 8 | - |
Uppstig | 2:00 | - | 100 |
og ætla ég að rústa þessu dæmi en svo endar dagurinn með partýi á Strikinu þar sem vonandi allir sjá sér fært að mæta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)