Færsluflokkur: Lífstíll

Áhugabloggari sem stendur sig ALDREI í stykkinu.....

Jamm og já það eru orð með réttu, langar svo að halda úti bloggsíðu en það bara er ekki svo einfalt.  Ég fyllist orku og bloggáhuga svona annað veifið en eftir svona tvær til þrjár færslur þá bara gleymist bloggið þar til áhuginn kviknar á ný, en viti menn þegar hann kviknar á ný þá verð ég að byrja á því að stofna nýja síðu.."en hvers vegna" jú það er nú vegna þess að ég er alltaf búin að gleyma lykilorðinu og þessu öllu til að komast inná gömlu síðuna.  En hvað um það, fólk hefur nú bara gott af smá fjölbreytni, og af henni á ég nú nó, t.d þá þurfa ættingjarnir mínir sem búa fyrir sunnan aldrei að heimsækja mig í sömu íbúðina tvisvar því okkar mottó er að flytja sem oftast, en þeir sem koma til okkar oftar en einu sinni á ári þurfa reyndar að koma oftar í sömu húsakynni,  það er nú svo sem ekki mikið um það að fólk geri það, tja nema Linda mágkona og co þau eru reyndar voða dugleg að koma já og Dagný sem þó bjó nú í Hollandi, held þær hafi nú ekkert komið sjaldnar til okkar heldur en teindó sem býr þó í samt sama bæjarfélagi og við...nei nei bara smá djókGrin  Nýja heimilisfangið okkar er Lækjartún 8 íbúð 207.   Þetta er afar fín og flott íbúð og það tók okkur sko ekki langan tíma að koma okkur fyrir, svona þar sem sumir telja mig vera með e-hverja hendi áráttu þá eigum við ekkert auka drasl og dót til að planta hér og þar um alla íbúð, þannig að þetta var fljót afgreitt mál, svo ég tali nú ekki um hjálpina sem barst alla leið að sunnan, en þau Linda og Beggi komu sér ferð til þess að hjálpa okkur við þetta og kom það sér afar vel og erum við þeim afar þakklát fyrir þaðGrin  En svo eru það nýjustu fréttirnar að hún Tara systir mín og Ástþór hennar ástkæri elskhugi eru búin að eignast barnið sem er nú aldeilis búið að íþyngja henni systir minni síðustu mánuði, þannig að Poulsen fjölskyldan fer sífellt stækkandi og er þetta nú alveg með eindæmum gullfallegt og heilbrigt fólk sem í hana fæðist til hamingju með þetta kæra fólkKissing  Og svo má ekki gleyma því að Dagga beik og co eru flutt til landsins aftur, það verður ágætt að hafa þau aðeins nær, ætla þau sér að setjast að á suðurlandinu til að byrja með þar sem Beik ætlar sér að leggja undir sig snyrtibransann á Íslandi.

En jæja ætli þetta sé ekki ágætt í bili, og svo bara kemur í ljós með framhaldið.......


Bogga

Bogga
Útivinnandi eiginkona og móðir, jafnframt áhugamanneskja um hin ýmsu heimsmál.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband